Eva Rut

27.12.2006 09:05:46 / appelsina

sullubull

Jæja, núna er komin niðurtalning í afmælið mitt eins og sumir hafa kanski rekið augun í. Ekki það að mig hlakki eitthvað rosalega til en 20 ár er víst stórt afmæli og allir eru alltaf að segja mér að eitthvað verði ég að gera til að halda upp á það.
Hvað það gæti verið get ég ekki hugsað mér, og hvort ég eigi að bjóða einhverjum að halda uppá það með mér.... Og hverjum myndi ég þá bjóða? En eitt er víst að ég ætla að hafa þessa niðurtalningu í gangi og hver veit hvort að einhverjir aðrir en mamma og pabbi og amma og afi eiga eftir að muna eftir því og óska mér til hamingju með daginn. Annars get ég ekki áfellst neinn sem man ekki eftir afmælinu mínu því sjálf man ég enga afmælisdaga.  :$


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.12.2006 18:05:29 / appelsina

Allir krakkarnir!!!!

Hef verið mikið andvaka síðustu nætur. Eða eiginlega bara allan desember. Þá gerir maður ýmsa hluti í andvökunni og um dagin rifjaði ég m.a. upp nokkra hressa brandara.

Allir krakkarnir horfðu á kirkjuna brenna nema Hermann. ..Það var að ferma hann!

Allir krakkarnir fengu að ríða nema Sunna ...Hún var nunna!

Allir krakkarnir fóru út að leika nema Þráinn ...Hann er dáinn!

Allir krakkarnir voru duglegir í ræktinni nema Hera ...Hún notar stera!

Allar stelpurnar áttu kærasta nema Ýr ...Hún er hýr!

Allir krakkarnir voru með gel í hárinu nema Hrund ...Hún notar brund!

Þetta er allt sem ég man núna endilega bæta við fleirum ef þú manst eitthvað :D


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 22:12:22 / appelsina

Sæta svanga kisa


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.12.2006 02:50:29 / appelsina

lalalla

Fyrir þá sem langar að gefa mér yndislega jólagjöf þá er nákvæmlega þetta hérna draumá-úrið mitt í nákvæmlega þessum lit.. :haha:  svo fallegt úr að ég gæti dáið..


» 2 hafa sagt sína skoðun